ég las athiglisverða grein á body.is í gær eftir hann bjödda,
eftir að hafa lesið þessa grein er ég búin að ákveða að taka mér helgarfrí frá ræktini,
ég er orðin pínu leið á þessu eins og gerist alltaf og ég veit að ef ég passa mig ekki þá á ég eftir að gefast upp,
mér finnst ég vera búin að ná það góðum árangri að ég vil ekki hætta og gefast upp þá held ég að það besta sem ég get gert er að taka frí og hætta að hugsa um ræktina ,
mataræðið verður hins vegar alveg eins og það er búið að vera enda held ég að ég yrði bara líkamlega veik ef ég myndi borða einhvað sem ég á ekki að vera að borða , og líka ef ég sleppti því að borða .
ég er að fara til hanns í dag þeas bjödda og hann ætlar að kenna mér á ölll tækin og vikta og mæla mig,
ég er frekar stressuð yfir því vegna þess að ég er svo hrædd um að ég sé ekki að léttast eins og ég ætti að vera að gera, svo líka það að viktinn sem ég fór á hjá lækninum á síðasta föstudag er náttúrulega ekki viktinn sem ég fer alltaf á og er drulluhrædd um að hún hafi sýnnt mér einhverja tóma vitleisu.
en svona er lífið einu sinni og það getur verið snúið stundum,
ég vona bara hugurinn minn á eftir að æsast upp við fríið og ég verði öll betri eftir helgi þegar ég byrja á nýju prógrammi.
það verður eiginlega bara að vera því ef hugurionn er ekki með manni þá gerist voða lítið.